mánudagur, júlí 31, 2006 

Endur, steinar og kærustupör böðuðu sig í síðustu geislum kvöldsólarinnar úti á Gróttu





Skrifað af Jóni Emil -


 

5 .:. háls var fallegur

Hérna eru skemmtilegu myndirnar sem Salvör tók


hér er svo ein frá mér

Skrifað af Jóni Emil -


fimmtudagur, júlí 27, 2006 


Braggar eru skemmtilegt myndefni


Teknar í Nauthólsvíkinni rétt áður en að Söllar, vopnaðir byssum, gengu frá Stráum

Stráin á myndinni tóku ekki þátt




Skrifað af Jóni Emil -


þriðjudagur, júlí 25, 2006 

Já blessaður

Ný myndavél komin í hús

Myndirnar úr Þingeyingaferðinni eru því líklega þær seinustu sem ég tek á gamla Ixusinn

Hérna er ein af þeim fyrstu sem ég tók á nýju



Hvaða skarfur mun þetta vera Svenni?

Skrifað af Jóni Emil -


sunnudagur, júlí 16, 2006 

Lesið þetta

Sams konar frétt hefur eflaust birst á litháenskum öldum ljósvakans fyrir fimmtán árum.

Hér er sú gata


Skrifað af Jóni Emil -


fimmtudagur, júlí 13, 2006 

Hafiði heyrt söguna um manninn sem lét bréfaklemmu í skiptum fyrir íbúð?
Hefði ekkert á móti því að skipta á minni bréfaklemmu fyrir eina svona.

Skrifað af Jóni Emil -


mánudagur, júlí 10, 2006 


Snæfellsnes 2006

Allt vingjarnlegt fólk velkomið laugardaginn 15. júlí

Svefnpláss meðan húsrúm leyfir
Síðan er líka eitthvað pláss eftir á tjaldsvæðinu


Matur og voði fyrir gesti

Sætar stelpur mjögvelkomnar



Skrifað af Jóni Emil -


 

Ef ég man rétt

2,5 bollar hveiti
1 bolli kakó
3 bollar sykur!
3 tsk lyftiduft
3 tsk matarsódi
250 gr af smörlíki
4 egg
1 bolli af mjólk
2 bollar af sjóðandi vatni

hendið öllu þessi í skál og hrærið
ekki hafa áhyggjur þó mixið virðist fremur þunnt

hellið í form og hitið í 40 mín á 170° C eða þangað til að kakan er orðin þurr


Smjörkremið

225 gr af smjöri (frekar en smjörlíki)

hrærið í u.þ.b. 10 mín eða þangað til að það er orðið hvítt og loftkennt

4 eggjarauður

eina í einu og hræra á milli

150 gr af flórsykri

hræra meira

200 gr af suðusúkkulaði

bræðið og hellið síðan í skálina og hrærið meira

Þegar kakan er tilbúin skal hún fjarlægjast úr ofninum. Bíðið uns hún er búin að ná stofuhita með að setja kremið á.

Varist að setja kremið inn í ísskáp yfir nótt því það á það til að verða grjóthart. Séu menn í vandræðum með hart krem má alltaf prófa hárblásarann í samvinnu við hrærivélina. (Reyndist mjög vel)

Mjakið kreminu á. Sumum finnst gott að tvískipta kökunni og setja krem á milli.

Borðist með ískaldri mjólk.

Skrifað af Jóni Emil -


fimmtudagur, júlí 06, 2006 

hnæ hnæ

Bloggið búið að vera steindautt undanfarnar vikur

Vonandi lagast það fljótlega en það er nú samt sumar

Myndir af Hróarskeldu segiði...

Skemmtileg ferð
Hátt í 30 stiga hita á daginn og við frostmark á næturna
(takk fyrir flíspeysuna mamma)

Frábær tónleikadagskrá en því miður sá maður bara brot af því besta

Vonandi fanga myndirnar eitthvað af því góða við Hróarskeldu

Skrifað af Jóni Emil -