föstudagur, maí 29, 2009 

Það...

...er eitthvað virkilega rangt við það að bíða í biðröð eftir BudLight.

Þessa helgina verða endurmót í Princeton. Sagan segir að pöntunin sem er lögð fram hjá Anheuscer-Busch sé næst stærsta pöntun sem bjórframleiðandinn fær árlega. Næst á eftir Indy 500 kappakstrinum.

Skrifað af Jóni Emil -


þriðjudagur, maí 26, 2009 

Fékk mér

Eurotart ís með jarðarberjum, kíví og karamellu. Nokkuð sáttur!

Skrifað af Jóni Emil -


sunnudagur, maí 24, 2009 

Félagar

Þegar ég hugsa til baka þá held ég að allt það mikilvægasta sem ég lærði á þessu ári hafi ég lært af félögum mínum. Ekki af bókum, eða með því að fara í tíma. Það eru mikill forréttindi að fá að umgangast þetta fólk og læra af því. Það er líka afar hressandi þegar maður gerir sér grein fyrir því hvað það er margt sem maður á eftir ólært og jafnframt tilhlökkunarefni að fá tækifæri til þess.

Satt að segja voru tímarnir sem ég þurfti að sækja ekkert sérstaklega góðir. Heimadæmin í stærðfræðilegri eðlisfræði voru samt frekar skondin. Kom nefnilega á daginn að í sérhverjum heimadæmaskammti þurftum við að gera eitthvað sem að kennarinn okkar hafði gert fyrstur manna.



Hössi kom í heimsókn í vor


Ég var virkilega heppinn að hitta Geir og Völlu hérna í Princeton. Þau hafa aðstoðað mig svo mikið og verið góðir félagar.

Skrifað af Jóni Emil -


föstudagur, maí 22, 2009 

Jæja

Ég held að ég sé búinn með fyrsta árið í Princeton. Veit samt ekki alveg. Þetta gerðist einum of hratt. Kem með sögur af árinu von bráðar.

Skrifað af Jóni Emil -