« Home | Jæja... » | Sólin... » | Sumarið verður skemmtilegt... » | Ertu að meina þessa? » | Hver er þetta? » | » | Escapism » | Jæja þá er því lokið » | Smá karlrembuhúmor sem mótvægi við allt þetta mjúk... » | Ræðan sem enginn heyrði, eða hvað? » 

sunnudagur, maí 20, 2007 

Söllagrill

Allar í einu

Á föstudaginn tóku Söllar á móti sumri með afar skemmtilegri grillveislu. Eins og vill gerast þá tafðist matseldin nokkuð og gafst því tími fyrir menn til að ræða um allt milli himinns og jarðar. Ekki leið þó á löngu að menn fóru að ræða um stjórnmál enda við hæfi þessa dagana.

Margir voru sáttir með þróun mála en sumir voru þó ekki alveg eins glaðir. Persónulega lýst mér bara nokkuð vel á ríkisstjórn samfylkingarinnar og sjálfstæðisflokksins.

Er við gæddum okkur á ljúffengum grillteinum fóru menn að ræða um einhverja unga stelpu sem hafði látið þau orð falla að hún hyggðist gerast stjórnmálaður í framtíðinni. Við borðið voru menn sem fannst það virkilega asnalegt og jafnvel hallærislegt. Það getur verið vegna þess að þeir þekktu stelpuna og fannst hún bara yfir höfuð asnaleg, það hef ég ekki hugmynd um. En allavega, menn hlóu að þessum orðum hennar og sögðu að menn ættu bara ekki að segja slíka hluti. Við það mótmælti ég og spurði hvað væri rangt við það að lýsa yfir áhuga á frama í stjórnmálum. Ég hef áhuga að læra eðlisfræði, og jafnvel vinna við eðlisfræði í framtíðinni ætlar einhver að segja að það sé ekki við hæfi að ég tilkynni slíkt á bloggsíðunni minni.

Ég tel mig samt vita nokkuð vel hvað menn áttu við þegar þeir sögðu að þeim finndist tilkynning þessarar stelpu óviðeigandi og jafnvel hrokafull. Þeim finnst að stjórnmálamenn eigi að láta lítið fyrir sér fara og ef þeir eru heppnir og þeim gengur vel þá eigi þeir að feta sig hægt og bítandi upp metorðastigann uns spaðatign er náð.

Ég skil samt ekki af hverju menn eru á móti því að stjórnmálamenn landsins sýni smá hreinskilni. Er það ekki einmitt það sem fer svo mikið í taugarnar á tilvonandi stjórnarandstæðingum þessa dagana? Þeim finnst sem Geir Haarde og félagar hafi ekki verið sýnt næga hreinskilni í viðræðum sínum við framsóknarmenn sem og fjölmiðla.

Hvað er ég að reyna að segja?

Ef menn þoli ekki að fólk sé opinskátt þegar það talar um stjórnmál þá mega þeir heldur ekki vera fúlir þegar stjórnmálamenn grípa til þess að segja lítið og meina enn þá minna.






Kærar þakkir til Brynjars

Skrifað af Jóni Emil -