« Home | Stofnfundur Söllenbergers » | Myndir frá Hallgeirsey » | Í þar til gerðum hlýrabol » | Hvað gerðirðu » | Wal*Art » | Ef þú ert » | Norðurljós » | Við það að springa » | Sumarið er komið » | Ekki alvöru bissneskall » 

þriðjudagur, ágúst 12, 2008 

Endurræsing

Jújú, bloggsíðan hefur legið niðri í dágóðan tíma. En nú verður bætt úr því. Haustið er að koma og þá fer maður víst í skóla en þar eru bloggfærslurnar kærkomin tilbreyting frá skólabókunum.

Í dag er ferðinni heitið til Grænlands með Einsa og afa. Við ætlum okkur að veiða bleikju í vatninu Tasersuaq og ánni sem rennur í það. Hollið sem fór þar um daginn veiddi 300 fiska, stærstan 15 pund. En auðvitað skiptir veiðin svo sem litlu máli þegar félagskapurinn er góður og náttúran stórbrotin. Ég verð með myndavélina með mér og mun vonandi taka mikið af myndum.

Síðan er Princeton á næsta leiti en þar eru vonandi þó nokkur myndefni.

Myndir frá velheppnaðir veiðiferð í Hítarvatn:




Skrifað af Jóni Emil -